Vá, ég held að ég hafi verið að sjá ein flottustu norðurljós sem ég hef séð. Ég vissi ekki einu sinni að það væri hægt að sjá norðurljósin hérna í Osló, hélt að borgin væri of sunnarlega. Enda var alveg fullt af fólki úti að horfa og ég komst að því að það er ekki hægt að taka mynd af norðuljósum, alla vegana ekki á mína myndavél :-/ en vá hvað þetta var flott!! Haha samt dáltið fyndið að Íslendingurinn sem á nú að hafa séð norðurljósin dáltið oft er alveg að missa sig yfir þessu. Annars komst ég að því í kvöld að ég get orðið alveg ágætis húsmóðir. Ég bakaði smákökur í kvöld með Rike, Silje og Guri Lise. Ég held ég hafi barasta aldrei bakað jafn mikið af smákökum eins og ég hef gert hérna í Noregi. Ég fékk svo uppskrift að heiman svo við gætum líka bakað e-ð “íslenskt” og ég gerði þá sort alveg sjálf :-D, vissi að vísu á tímabili ekkert hvað ég var að gera
Silje, ég og Guri Lise
en kökurnar voru alveg geggjað góðar. Þ.a. ef e-r vill koma til mín í kaffi þá á ég fullt af smákökum!! Annars má nú e-r endilega koma til mín núna því ég er alveg að fríka út yfir því hvernig ég á að koma öllu dótinu mínu heim. Þ.a. ef e-r vill koma á sunnudaginn með engan farangur og hjálpa mér heim á mánudaginn og vera yfirvigtin mín og auka hendur þá er það vel þegið. Annars er ég að reyna að senda e-ð heim með pósti þar sem maður má víst bara hafa lítil 20 kg með sér :-/ Ég keypti e-n kassa þar sem ég má setja 10 kg í hann. Ég á náttúrlega ekki vigt þ.a. ég veit ekkert hvað 10 kg eru mikið. Ein stelpa sem býr með Silje og Rike á vigt þ.a. Silje bauð mér það að ég gæti komið með allt dótið niðureftir til þeirra og vigtað hvað það er þungt og farið svo með það allt tilbaka. Silje var alveg rosa hissa á því að mér fyndist þetta ekki vera sniðug uppástunga, henni fannst ekkert að því að ég labbaði með 10 kg kassann upp og niður brekkuna, þessir Norðmenn!!! Annars fékk ég svona matarvigt lánaða hjá þessari stelpu sem býr með þeim, þ.a. núna sit ég og legg einn og einn hlut í einu á vigtina og legg saman hvað allt er þungt :-P Og bara bækur sem ég sendi heim eru þyngri en 10 kg :-/ þ.a. nú þarf ég að kaupa annan svona kassa. Svo megiði líka koma til að halda á kössunum út á pósthús því ég er ekkert svo viss um að ég sé það sterk að ég geti haldið á tveimur 10kg kössum :-( Lóló frænka var samt svo sæt í sér að hún er búin að bjóðast til að keyra mig út á lestarstöð á mánudaginn og það munar sko alveg fullt, því ég er með 3 töskur, tölvutösku og veski og ég er bara með tvær hendur þ.a. ég er ekki alveg að fatta hvernig þetta á að ganga hjá mér. Það getur nebbla enginn annar hjálpað mér því að á mánudaginn verða eiginlega allir sem ég þekki í prófi akkúrat á þessum tíma eða farnir heim til sín.
Ég er nú þegar búin að kveðja slatta af fólki og það er alltaf jafn sorglegt að kveðja. Að vísu hef ég komist að því að Ísland og Noregur eru alveg fáránlega lík lönd að mörgu leiti, þ.a það ætti að hjálpa mér í að sakna Noregs minna ;-) T.d. náttúran (mínus öll tréin sem eru í Noregi) og svo margir siðir líka. Ég veit ekki hversu oft ég hef heyrt um e-ð sem ég hélt að væri sér íslenskt en svo er það líka norskt. Seinast þá var það á jólamarkaði sem er haldinn á Árbæjarsafni þeirra Oslóbúa. Þar voru fullt af litlum krökkum að dansa norska þjóðdansa. En hvað haldiði ekki, allir þessir norsku þjóðdansar voru þeir sömu og íslensku gömlu dansarnir, það eina sem var öðruvísi voru fötin sem krakkarnir voru í.
Annars fannst mér svo gaman á þessum jólamarkaði að ég fór tvisvar :-P Það er alltaf e-ð svo mikil jólastemmning o.sl. á svona stöðum. Mér fyndist nú bara að Árbæjarsafnið ætti líka að byrja með svona jólamarkað (eru þeir kannski með solleiðis??)
Að lokum ætla ég að sýna ykkur hvað er mikill munur á háskólalóðunum hjá HÍ og UIO. Hérna er “mín megin á háskólasvæðinu” öll húsin hægra megin eru félagsvísindadeildarhús og þar er hagfræðiskorin. Mér finnst e-ð svo huggulegt þarna og þegar það var hlýtt þá sat maður bara á grasinu að spjalla og borða og læra o.sl. mér finnst alveg vanta e-ð svona heima (kannski að það sem vanti helst sé að það sé hlýtt, en það eru heldur engin grassvæði til að sitja á og hafa lærdómspiknikk)
Ef ykkur finnst erfitt að vita muninn á hægri og vinstri þá getiði hugsað þetta eins og ég hugsa þetta til að muna hvort er hvað. Hægri er sem sagt hendin sem ég skrifa ekki með og þannig kemst ég alltaf að lokum að því hvort er hægri og hvort er vinstri;-) En þar sem þið eruð flest það skrítin að þið skrifið með hægri hendinni þá er hægra megin sú hlið sem þið skrifið með :-P
Hérna erum svo ég, Silje og Rike á aðal”torginu” en í kringum það eru fullt af matsölum, kaffihúsum, matvörubúð, bókabúð, pósthús, banki, apótek, læknir, pöbbar og alls konar svona sem er barasta ekkert á háskólasvæðinu heima. En ætli það fari ekki að koma með byggingu háskólatorgsins? Annars er UIO fínn háskóli, enda einn af topp 100 háskólum heimsins það sem er markmið HÍ að ná, þ.a. endilega allir að koma til Osló að læra ;-)
15. desember 2006 klukkan 07:28
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 3 athugasemdir
Jæja þá eru prófin búin og ég komin í jólafrí!! :-D Mér finnst alveg æðislegt að vera búin svona snemma og núna get ég farið að túristast og gera það sem ég vil ;-) Annars þá gengu prófin vel, og mér fannst í rauninni ótrúlega gaman að prófa e-ð nýtt, sem sagt að taka próf annars staðar en í HÍ, enda er aðeins öðruvísi fyrirkomulag hérna heldur en heima. Maður verður t.d. að vera mættur snemma í prófið því það eru ekki næg sæti, ótrúlega furðulegt samt finnst mér að hafa ekki næg sæti. Þetta er svona, “ó, æ æ, það mættu allir í prófið”, greinilega búist við forföllum. Svo eru blöðin sem maður skrifar á í þríriti, þ.a. maður verður að passa að það fari örugglega í gegn, svo í lok próftímans þá fær maður tíma til að sortera blöðin rétt. Þegar maður er búinn að því þá þarf maður að rétta upp hendi til að fá prófsetufólkið til að koma til manns til að athuga hvort maður hafi sorterað og merkt allt rétt, það skrifar síðan undir að það samþykki að þetta sé rétt, sem sagt hversu mörg orignial blöð og öll saman í möppu og hversu mörg copy blöð etc. Eftir það þá þarf maður að standa í röð með skilríkin sín (ég by the way vissi það ekki í fyrsta prófinu mínu, las leiðbeiningarblaðið ekki nógu vel :-/ og þurfti þá að fara aftur í röðina með skilríkið mitt, grr) til að láta yfirprófsetu manneskjuna fá prófið (original og copy) og þá er aftur talið og farið yfir og svo merkt að maður hafi skilað. Alveg þvílíkt formlegt sko, en samt finnst mér þetta vera sniðugt. Það eina er að þessi prósess getur tekið upp í hálftíma, þannig að þetta er ekkert hlaupa út úr prófinu dæmi eins og heima. Daginn eftir prófið þá byrjaði túrista pakkinn minn. Við fórum upp að Holmenkollen sem er skíðastökkpallur hérna Ég hjá Holmenkollen
og skíðastökkpallurinn er uppi á hæð þ.a. það er alveg geðveikt útsýni þaðan, það eina var að það var slydda og þoka þegar vorum þarna þ.a. það sást ekki jafn vel og vanalega. Hérna getiði samt séð myndir teknar þaðan af fallegu borginni minni ;-)
Svo var haldið niður í bæ til að fá smá jólastemmningu og ég ætlaði sko að kaupa fullt af jólagjöfum. En það gekk náttúrulega ekki. Hehe þetta varð nú dáltið fyndið því Silje, Rike og Guri Lise voru allar að leita sér að skóm og fötum en ég var bara að leita að jólagjöfum, en hvernig haldiði að þetta hafi endað, þær keyptu ekki neitt en ég keypti skó og þrennar peysur, enda voru þær ekkert hressar hvernig mér tækist að finna þetta allt en þeim ekki neitt. Mér tókst þó að kaupa eina jólagjöf, þ.a. hægt að stroka eina út af listanum :-) Ég leyfði þeim svo að smakka Draum, en það er seldur Draumur, Rís, Hitt og Þetta í einni búð í Osló. Þeim fannst alveg ótrúlegt hvernig einhverjum hefði dottið í hug að blanda saman súkkulaði og lakkrís, en sögðu samt að þeim fyndist það gott :-P Ég er síðan búin að baka 3 smákökusortir. Ok, ég var kannski ekki alveg ein, við vorum 13 sem bökuðum saman, en það var geðveikt stuð að vera svona margir saman að baka, ég vissi ekki að bakstur gæti verið svona sósíal og þvílíkt jólagaman :-D. Þegar ég spurði hvernig smákökur við myndum baka þá fékk ég svarið “þessar venjulegu jólakökur” hahaha segir það ykkur e-ð að fá svarið venjulegar jólakökur?? Það eru til svo margar sortir að hvað er venjulegt??? En þetta voru þjóðverjar sem ég spurði og þar er víst til e-ð sem heitir venjulegt. ég, Henrike – Þýskaland, Montse, Nadine – Þýskaland, Nora að gera venjulegu þýsku smákökurnar á meðan Fabian – Sviss, Rike, Rea – Sviss, Lotte – Holland og Anna voru að gera svissnesku smákökurnar.
Svo voru kökurnar skreyttar
Og hérna er svo útkoman, þ.a. núna vitiði hvernig venjulegar þýskar jólasmákökur eru :-D Ótrúlega gaman að vera komin með smákökur í hús þannig að ég er búin að vera sötrandi te og borðandi jólasmákökur :-D Svo á fimmtudaginn þá mun ég baka smákökur með norsurum þ.a. þá fæ ég að komast að hvernig venjulegar norskar smákökur eru ;-) Annars gerði ég alveg geggjað skemmtilegt í kvöld og mér finnst að við ættum að gera svona líka á Íslandi. En það er íþróttaskóli hérna við Kringsjå þ.a. hérna er frjálsíþróttavöllur, fótboltavöllur fullt af fleiri völlum og svo skautasvell :-) við fórum nokkur á skautasvellið bara í venjulegum skóm þar sem fæstir eru með skauta með sér og með kústa og svona skúringadót með okkur og spiluðum “íshokkí” Vá hvað það var gaman!!!!! Ég held ég hafi barast aldrei áður spilað íshokki (á venjulegum skóm með skúringaskaft) haha og sem pökk þá notuðum við túnfisksdós, maður bjargar sér sko ;-) Fólk var náttúrulega sídettandi, en enginn meiddi sig neitt þó. Mér tókst þó að standa í lappirnar og datt aldrei :-D Við vorum síðan fimm stelpur og Mark kærastinn hennar Rike á móti fjórum íþróttastrákum og það fór jafntefli og við vorum alveg geðveikt góðar :-D enda voru strákarnir “fúlir” yfir því af hverju í ósköpunum við værum svona góðar, hehehe ;-) Ég var hvað svakalegust þegar ég var í marki. Við erum sko að tala um þrír á móti mér einni nokkrum sinnum en samt tókst þeim ekki að skora;-), og þetta voru ekki svona lítil íshokkímörk heldur svona aðeins stærra en handboltamark. En þetta var geggjað stuð og mig langar að gera svona heima líka, hver er geim??? Hérna erum við svo nokkur Eivind – Noregi, Nora, Pete – USA, Eric – USA, Mark – Þýskaland, ég, Silje og Rike vel búin skúringasköftum :-P
10. desember 2006 klukkan 07:41
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 4 athugasemdir
Oj, ég er svo pirruð!! Ég sem sagt nota almenningssamgöngur alveg fáránlega mikið og fer í lest, strætó eða e-ð annað oft á dag. Í hverjum mánuði hef ég samviskusamlega keypt mér mánaðarkort á 4500 kr. Ég er búin að vera í Osló í tæpa 4 mánuði og ég hef aldrei lent í tékki (á meðan allir aðrir eru alltaf að lenda í því) og ég hef oft hugsað hversu mikil “sóun” það er að vera alltaf að kaupa miða fyrst ég þarf aldrei að sýna hann. Ok núna segja margir en maður á náttúrulega að borga fyrir þá þjónustu sem maður notar, en metró fyrirtækið hérna á sko ekki skilið að fá pening fyrir crappy þjónustu, vá það myndi taka nokkrar síður fyrir mig að lýsa vanþóknun minni á því fyrirtæki. Í stuttu máli þá er ekki hægt að stóla á þá og t.d. einn morgun þá ákváðu þeir að cancelera lestarlínunni minni í viku af því að meira en helmingurinn af lestarvögnunum þeirra var bilaður þ.a. þeir áttu ekki nógu marga vagna til að halda uppi þjónustunni. Alla vegana í morgun þá lenti ég í tékki og hugsaði vá loksins get ég sýnt þennan blessaða miða. Nei hvað haldiði ekki, miðinn var bara ekkert á sínum stað í veskinu mínu Þá hafði ég skilið hann eftir í kápuvasanum mínum í gærkvöldi (og ég var by the way ekki í þeirri kápu). Ég átti síðan að fara út á næstu stöð en gellan var e-ð nei þú verður bara að vera í lestinni þangað til ég er búin að skrifa reikninginn þinn. Sko glætan, ég var að verða of sein og ætlaði ekki að þurfa að labba langa leið af því ég mætti ekki fara út á stöðinni minni. Þannig að ég reifst í henni þangað til hún sagði ok við förum þá út á þessari stöð og allt tékkstarfsfólkið fór þá út þar í staðinn. Í stutt máli sagt þá þarf ég að fara niður í bæ á “almenningssamgönguskrifstofuna” innan 3 daga og sýna þeim að ég eigi gildan miða, annars þarf ég að borga 10000 krónur takk fyrir. Ég hef ekkert tíma í svona rugl, er að fara í próf á morgun og annað próf á föstudaginn og það tekur svo geðveikt langan tíma að komast á milli staða og það er alltaf svo mikið af fólki á skrifstofunni að maður þarf að bíða í svona klukkutíma!! Annars er þetta búið að vera mitt annað heimili síðust daga.
Rike og Jill hjá bókasafninu á háskólasvæðinu. Fysta prófið er á morgun og ég er orðin alveg nett stressuð, sérstaklega þar sem annað prófið er daginn eftir. Svo fer ég í seinasta prófið á miðvikudaginn í næstu viku. Þannig að verð búin 6. desember, ég held að það hafi bara aldrei gerst áður að ég hafi verið búin svona snemma. Bækurnar í faginu á morgun er á norsku sem stressar mig smá sérstaklega af því ég tek prófið á ensku, mér finnst svo erfitt að þýða á milli norsku og ensku, veit ekki af hverju. Annars er ég orðin miklu fljótari að lesa norskuna heldur en ég var í byrjun árs, get alla vegana sagt að ég kunni hagfræði á norsku. Í hinu faginu sem er á norsku þá var bókin á ensku. En sú bók var náttúrulega ekkert nóg þannig að við fengum tvö auka hefti sem eru á norsku. Ok, ekkert að því, nema svo byrjaði ég að lesa og þá er annað þeirra á nynorsk Hehe í þessu fagi þá er 50% krossaspurningar sem er náttúrulega dregið niður fyrir ef maður svarar vitlaust, en svo í almenna hlutanum þá er maður líka dreginn niður ef maður skrifar e-ð vitlaust. Hahaha mér finnst það bara fyndið, þ.a. ef maður er ekki viss með e-ð en ákveður samt að skrifa þá fær maður mínus stig ef það er vitlaust!!!! Annars hafa dagarnir undanfarið verið þannig að ég er á bókasafninu frá því um morgun þangað til bókasafnið lokar klukkan 19.45 Þá hefur mér alltaf verið boðið í mat e-t. Algjör snilld, að vera að læra allan daginn og koma svo í mat og geta slappað af. Í gær var Noura frá Frakklandi með franska máltíð fyrir okkur. Noura
Þessar voru einnig í gær - Rike, Monze, Anna, Nora
Og þessi - Jim, Nora, Jill (á að vera Gill en mér finnst Jill flottara)
Oh, ég á eftir að sakna allra svo mikið!!! snökt, það er nebbla svo rosa stutt þar til ég kem heim og þá er þetta bara búið og ég veit ekkert hvenær ég hitti fólkið næst (nema ég veit hvenær ég hitti Silje, Rike og Noru næst )
29. nóvember 2006 klukkan 16:50
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 9 athugasemdir
Fór á nýju James Bond myndina í gærkvöldi ásamt nokkrum Íslendingum. Mér fannst hún bara alveg helvíti góð og miklu betri en hinar sem ég hef séð. Ok, ég hef kannski séð svona 2 aðrar Bond myndir, en minnist þess ekki að hafa hlegið svona mikið þegar horfði á þær. Hehehe 2. atriðið í myndinni (eða kannski var það þriðja...æ skiptir ekki máli) alla vegana það var held ég fyndnasta hasaratriði sem ég hef nokkurn tímann séð!! Helga kom líka með frábært komment um það “Það er greinilega styttra síðan hann var api” hahahaha. Skiljiðað þegar sjáið myndina. Annars var hann Daniel Craig bara svona svaka flottur Bond. Að vísu gat ég ekki notið myndarinnar eins og hefði viljað því ég þurfti svo geðveikt mikið að pissa alla myndina!!!! Vá ég hélt í alvöru á tímabili að ég myndi deyja, og það er sko ekki hlé í bíóum í útlöndum!! Þannig að eyddi rúmlega 2/3 af myndinni í að bíða eftir að hún væri búin svo gæti farið að pissa
Röltum svo aðeins niðrá Karl Johan gate sem er Laugavegur Oslóar. Þar var búið að setja upp svaka fín jólaljós . En samt ekki sett á alla götuna, hlutinn sem liggur upp að konungshöllinni var ekki með nein jólaljós og var bara í myrkri. Ætli borgin sé að spara?? Mér finnst nú að kóngurinn og drottningin eigi líka að fá jólaljós!!
Hérna erum ég, Þóra, Helga og Solla. Sjáið alveg svaka fín jólaljós Fyrir utan jólaljósin var Karl Johan samur við sig. Betlarar sitjandi við hverja ruslatunnu. Einnig konurnar sem líta út fyrir að vera sígaunar og annað hvort eru þær labbandi um og betlandi eða þær spila sama lagið aftur og aftur á harmonikku til að fá pening eða þá að þær reyna að selja rósir. Að vísu segja Norðmenn að maður eigi aldrei að gefa þeim neitt, því það væru einhverjir gaurar sem væru að skipuleggja þetta (þær eru sko út um allt um alla borg, geðveikt margar) og að þeir hirtu svo peninginn, þær fengu eiginlega ekkert af honum. Að vísu sá ég nýtt, það voru nokkrar vændiskonur á Karl Johan, hef aldrei séð þær þar áður, hélt þær væru bara í hliðargötunum. Mér finnst samt ótrúlega sorglegt að í einu af ríkasta landi heims sé svona rosalega mikið af betlurum og heimilislausu fólki. Og það sefur bara úti á götu og það er sko alveg geðveikt kalt!!
Þó að þetta hljómi kannski ekkert sem geðveikt góð lýsing á götunni þá er samt mjög fínt þarna. Margt um að vera, náttúrulega þúsund sinnum meira fólk heldur en myndi vera á Laugaveginum heima o.sl. Þannig að allir að fara i heimsókn til Osló Ég meina það verður alltaf auðveldara og ö-a ódýrara, því næsta sumar þá verða 3 flugfélög sem fljúga á milli Íslands og Osló.
Ég var samt ekki glöð þegar ég kom heim. Báðar lyfturnar voru bilaðar!!! Og ég þurfti að labba upp á 8. hæð!! Veit ekki hvort það sé komið í lag, efast samt e-n veginn um það þar sem ef e-ð bilar hérna þá er tekinn góður tími áður en byrjað er að reyna að laga. Önnur lyftan er sko búin að vera í ólagi í um 2 vikur, þannig að bara önnur lyftan sem var í gangi. Oh nenni varla að fara e-t ef þarf að vera að labba upp og niður. En maður ætti kannski að líta á björtu hliðarnar, ég bý alla vegana ekki á 11. hæð í 11 hæða húsinu
25. nóvember 2006 klukkan 19:53
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 10 athugasemdir
Ég elska kírópraktora!! Þar sem ég get víst ekki tekið Sólveigu elsku bestu frænku mína með hvert sem ég fer þá þurfti ég að finna mér kíró hérna í Osló og honum tókst að laga mig í dag!! Ég er sko búin að vorkenna mér alveg gríðarlega alla helgina!! þar sem ég festist í hálsinum og allir vöðvarnir hægra megin í andlitinu á mér urðu e-ð skrítnir. Við erum að tala um að ég gat ekki opnað munninn almennilega til að bursta tennurnar og það var algjört hell að geispa!!
Ég held að síðast þegar mér var svona illt í andlitinu (og höfðinu) var eftir að við gerðum andlitsæfingarnar í leikfimi í MR hjá henni Rögnu Láru. Hahaha muniði eftir því þegar hún sagði að það væri alveg jafn mikilvægt að æfa andlitsvöðvana eins og aðra vöðva líkamans. Svo kom hún með þetta 40 mínútna andlitsæfingamyndband. Dísús ég var með svo miklar harðsperrur í andlitinu eftir það að ég hélt ég myndi drepast!!!!!
Annars ætla ég að sýna ykkur hvað ég á svaka fína ættingja hérna í Osló. Lóló er sem sagt búin að búa í Noregi í rúm 20 ár og auðvitað þegar maður fer til útlanda þá hefur maður upp á ættingjum sínum Ég meina ég hafði nú hitt hana áður, þegar ég var svona ca 9 mánaða Ekki það að hún sé e-ð fjarskyld, hún og mamma eru systradætur. Annars þá er alltaf svaka gott að koma til hennar í mat og fá að komast inn á alvöru heimili (allir hinir sem ég þekki í Osló búa á stúdentagörðum ) og geta slúðrað um okkar ágætu fjölskyldu
Hérna er svo fjölskyldan, Thomas sænski kærastinn hennar, Lóló, Egill norsk-íslenski frændi minn og Silje norsk-íslenska frænka mín.
Svo eru þessar þrjár búnar að boða komu sína til Íslands e-n tímann í mars (ég panta gott veður!!!!) og ég er strax farin að hlakka voða til. Hahaha algjör lúði, ég er ekki einu sinni búin að kveðja þær og er strax farin að hlakka til að hitta þær aftur.
Rike, Nora og Silje.
21. nóvember 2006 klukkan 05:52
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 9 athugasemdir
Oh ég er allt í einu komin í svo mikinn jólafílíng!! Þegar ég vaknaði í morgun og leit út um gluggann þá blasti við mér þessi sjón
Hvít jörð og það snjóar og snjóar ekta jólasnjó!! Betra en óveðrið heima ekki satt?!? ;-)
Núna þarf ég bara að fara út í búð að kaupa mér sófa, sjónvarp, teppi og heitt súkkulaði svo ég geti haft það kósí eins og ég myndi gera heima á Íslandi. En æ ég læt te, stólinn minn og tölvuna duga.
Í gær þá labbaði ég loksins í kringum Sognsvann. Ég gleymdi að vísu myndavél, hefði geta tekið fullt af úber flottum myndum. Að vísu var gangstígurinn í kringum vatnið eins og dauðabraut. Hann var einn ísklumpur og ég var í alvöru næstum búin að drepa mig tvisvar. Í annað skiptið greip Silje mig!! Annars hefði ég flogið beint á hausinn, og í hitt skiptið var ég næstum búin að bakbrjóta mig :-/ Hehe við vorum eins og beljur á svelli að labba þessa 3,5 kílómetra, en það var samt svaka gaman. Það eina sem ég skil ekki var að aðrir virtust geta labbað þetta mun auðveldar og hraðar án þess að vera alltaf næstum dottnir!! Strigaskórnir mínir víst ekki alveg að gera sig :-/
Annars sá ég á mbl.is um daginn að ég hef greinilega valið mér réttu löndin til að búa í í gegnum tíðina!! :-D Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna birtir árlega lista þar sem lagt er mat á lífsgæði í 177 ríkjum. Hérna getiði séð í hvaða sæti löndin sem ég hef átt heima í eru:
Annars vitiði hvað gaurinn(/gaurarnir?) heitir sem skrifaði Dýrin í Hálsaskógi og Kardimommubæinn?? Var það ekki einhver norsari? Við nebbla munum ekki hvað hann heitir :-/ Og eru þetta leikrit sem bara fólk frá Norðurlöndunum veit um???
13. nóvember 2006 klukkan 18:21
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 6 athugasemdir
Það var alveg óggisslega gaman í London ;-) Að vísu byrjaði það ekkert alltof vel þegar við Silje komumst eftir langt ferðalag loksins á alltof ódýra hostelið sem höfðum pantað. (1000 kr. nóttin á mann)Hostelið var einhvers staðar úti í rassgati í e-u dodgy hverfi (skv. Joyti og það leit nú ekkert alltof vel út þegar komum þangað) Sprungur í veggjum og alls konar svona. Þegar við opnuðum hurðina inn í herbergið okkar, sem var 8 manna herbergi með bæði stelpum og strákum í fengum við hálfgert sjokk!! Þarna blasti við okkur þessi litla sturta í horninu á litla herberginu!!! Jámms það var sem sagt sturta inni í herberginu, en þar sem sturtuhurðin náði upp í loft var ekki hægt að geyma handklæði eða föt eða neitt solleiðis þarna inni. Ég vildi að ég hefði fattað að taka mynd af þessu en þetta var það fáránlegasta sem ég hef nokkurn tímann séð!!! Svo var ekki hægt að loka glugganum í herberginu!! Og þegar við settumst í rúmið þá sukkum við niður í gólf!!! Og alls konar að sem litla pempían var sko ekki sátt við. Hvað gerði litla einkabarnið þá ekki, hún hringdi í bestu foreldra í heimi og bað þá um að finna hótelherbergi einhvers staðar inni í London. Þau fundu herbergi á fínu hóteli sem var rétt hjá Paddington stöðinni og Hyde Park og borguðu meira að segja fyrir sem svona snemmbúna jólagjöf. Þetta var held ég ein besta jólagjöf sem ég hef nokkur tímann fengið!!!!! :-D London er náttúrulega alveg alltof stór borg til að geta séð á rúmlega tveimur dögum. Við gerðum samt alveg slatta. Á föstudagskvöldinu fórum við nú bara út að borða í hverfinu hjá hótelinu. Meysi og Rósa voru í London og kíktu til okkar á veitingahúsið. Daginn eftir var vaknað snemma (vorum komnar út af hótelinu fyrir klukkan 10 og það er met þegar ég er annars vegar!!!) Byrjuðum á því að labba í gegnum Hyde Park sem er svaka kósí garður. Þar varð ég meðal annars fyrir íkornaárás takk fyrir!! Stoppuðum til að skoða kort, heyrði ég þá ekki að eitthvað kom á harðaspretti að mér. Þá voru þetta tveir íkornar sem snarstoppuðu svo fyrir framan mig og fóru upp á afturlappirnar og mændu á mig. Svo stökk annar þeirra allt í einu upp á fótinn á mér og byrjaði að klifra upp legginn á mér. Ég var nú ekkert sátt við að hafa einhvern crazy íkorna á mér og stóð þarna öskrandi að reyna að hrista helvítis íkornann af mér. Það var nú hægara sagt en gert og á meðan var hinn íkorninn líka að reyna að stökkva á mig. Að lokum tókst mér að losa þá af mér og dreif mig í burtu!! Niðurstaðan var skítugar buxur og vonin um það að ég hefði ekki fengið einhvern ógeðslegan sjúkdóm frá íkornunum. Á meðan á öllu þessu stóð þá stóð Silje við hliðina á mér í hláturskasti!! og það er eitt sem ég skil ekki íkornarnir létu hana alveg vera!!! Ég hlýt að vera með svona svaka íkorna aðdráttarafl. Svona svipað og þegar apinn studdi sér við mig í Nicaragua og þegar alpacca dýrið í Ástralíu hrækti yfir andlitið og bringuna á mér græna ógeðslega slíminu!! Og fólk er hissa á því að mér sé ekki vel við dýr.
Við fórum að sjá vaktaskiptin við Buckingham Palace, og þvílíkt mikið af fólki sem var þarna til að sjá. Þar hitti ég meðal annars hana Gyllu sem var einu sinni að þjálfarinn minn!!
Hérna getiði séð gaurana labba inn á hallarsvæðið spilandi James Bond themelagið (ætli breska kóngadótið hafi ekki átt lagið á undan Bond??)
Ég fyrir framandi verðandi heimili mitt (þegar ég verð búin að giftast Prince William og verð prinsessa og svo drottning :-D)
Silje hjá Big Ben Við löbbuðum sko ótrúlega mikið þennan dag!!Um kvöldið fórum við á Leicester Square til að fá okkur að borða. Þar sáum við alveg fullt af fólki standa við girðingar og svaka blossar og eldar og ljósashow o.sl. Þá kom í ljós að það var verið að frumsýna myndina The Prestige með Scarlett Johansson o.fl. í aðalhlutverki. Við ákváðum því að bíða til að sjá fræga fólkið labba niður rauða dregilinn. Ég hef aldrei áður verið á stað þar sem er verið að frumsýna svona stórar myndir með stórum stjörnum og ég get sko sagt ykkur að þetta er alveg fáránlegt. Það var alveg alltof mikið af fólki þarna og erfitt að sjá eitthvað (mér tókst samt náttúrulega að troða mér næstum alveg að girðingunni ;-) Svo allt í einu heyri ég alla öskra e-ð sem hljómaði eins og Jude og ég er sko að tala um að fólk tapaði sér og öskraði og öskraði og tók myndir og rétti út hendur og ég veit ekki hvað. Ég sá ekkert hver var að koma en bjóst kannski við að það væri Jude Law. Hver haldiði að hafi ekki komið að girðingunni beint fyrir framan mig annar en Hugh Jackman, ofur Ástralinn sjálfur :-D. (Þá var það Hugh en ekki Jude sem allir voru að öskra) Ég var sú eina þarna sem fattaði ekki að vera með blað til að láta hann skrifa á eða taka mynd af honum :-/ Svo kom Michael Caine og strunsaði niður dregilinn, nennti ekkert að tala við neina aðdáendur. Svo var hann Gollum úr Lord of the Rings þarna (man ekki hvað leikarinn heitir) Svo kom hún Scarlet og þá gjörsamlega trylltist allt!!! Ég náði ekki nógu góðum myndum af þessu, þannig að stal einni af people.com ;-)
Við forum líka í Notting Hill en fundum enga bókabúð :-/ Fundum samt nokkrar bláar hurðir á Portobello Road en engin þeirra leit rétt út.
Hérna er ég við einhverjar búðir á Portobello Road.
Hluti af Portobello Road, svaka sæt gata!!!
Svo var náttúrulega farið að verska á Oxford Street. Var að vísu í ekkert alltof miklu verslunar stuði þannig að keypti bara eitt par af skóm og svo 3. seríuna af OC. Ég er sko orðinn þvílíkur OC aðdáandi!! Þar sem hef aldrei verið með Skjá einn þá ákvað ég bara að kaupa seríurnar til að hafa nú eitthvað til að horfa á því er ekki með sjónvarp :-(.Var búin að kaupa 2. seríu í Norge en 3. serían ekki komin út þar. Annars þá hefði ég getað tapað mér í þessari HMV búð, þvílíkt úrval af DVD og CD!!!
Um kvöldið forum við á söngleikinn Chicago. Ógeðslega gaman!! og alveg ótrúlega hæfileikaríkt fólk sem leikur, syngur og dansar í þessu og það er líka í alveg ótrúlega góðu formi. Og maður var eitthvað svo hress og í góðu skapi þegar sýningin var búin. Mæli sko með því að fara á söngleik í London!!!
Núna er raunveruleikinn aftur tekinn við og bara lærdómur og lærdómur þar sem prófin eru að fara að byrja og það er ekkert upplestrarfrí í þessum blessaða skóla hérna!! :-/
09. nóvember 2006 klukkan 03:55
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 3 athugasemdir
Þrándheimur er voða kósí borg, þ.a. allir sem fara til Noregs verða líka að fara til Þrándheims (ásamt því að fara til allra hinna 1000 must see staðanna í Noregi). Hérna er ég og dómkirkjan í Þrándheimi, þar eru m.a. kóngarnir krýndir o.sl. alveg ótrúlega flott kirkja!!!
Svo er gamli bærinn í Þrándheimi ótrúlega sætur, allt út í timburhúsum og svaka kósí.
Þessi mynd sýnir að vísu ekki nógu vel hversu flott var þarna, en ég er ekki atvinnuljósmyndari þannig að ekki búast við neinu meira af mér ;-) Annars var ótrúlega gaman að hitta Svanhild aftur, sjá hvernig hún býr, hitta vini hennar o.sl. Hún var með hrekkjavökupartý heima hjá sér á laugardeginum og þurftu allir að vera í búning.
Hérna er svo myndarlega parið ;-) Svanhild og Kristoffer kærastinn hennar Ég var alveg svaka fín vampíra þetta kvöld :-P Annars þá er Svanhild frá eyju lengst uppi í Norður-Noregi og voru þau ca. 10 frá eyjunni hennar þarna um kvöldið (hehe ég alveg svaka fyndin og spurði hvort það væru einhverjir eftir á eyjunni fyrst þau væru svona mörg þarna :-D ) Það búa svona 5000 manns á eyjunni, en í þorpinu hennar Svanhild búa 400 manns, bara eins og ekta íslenskt fiskiþorp. Ég fer svo þangað í júní 2009 en þá ætla hún og Kristoffer að gifta sig!! (Jámms þau geta ekki gift sig strax af því fyrst þurfa þau að klára námið sitt og byrja að vinna og safna pening o.sl. – þessir hagsýnu norsarar!!!) En mállýskan þeirra er nú eiginlega bara óskiljanleg og hljómar á köflum barasta ekkert eins og norska. Hehe ég alveg svaka skemmtileg og sagði að þau þyrftu öll að tala við mig Oslóar-mállýsku annars myndi ég barasta ekkert skilja þau. Ekkert þeirra tók það í mál þar sem þeim finnst sú mállýska alveg ótrúlega hallærisleg (þau léku sér nú samt að því að herma eftir Oslóarbúunum og fannst það alveg svaka fyndið) Aðfaranótt sunnudags var tímanum breytt þ.a. við græddum klukkutíma. Þegar skemmtistaðirnir áttu að loka klukkan þrjú (já þeir loka snemma í Noregi) þá varð klukkan aftur tvö, þ.a. þeir þurftu að hafa opið klukkutíma lengur :-) Annars átti ég fyndnasta samtal í heimi við gaur sem vinnur á kebabstað sem við fórum á um nóttina (Kebabstaðir eru Nonnabiti norsaranna). Ég bað hann sem sagt um að pakka kebabnum mínum inn svo ég gæti tekið hann með (spurði hann á ensku þar sem fólk í Þrándheimi talar skrítna mállýsku). Hann horfir á mig voða lengi og segir svo: “Where are you from” ég svara samviskusamlega “I´m from Iceland” þá lítur hann á mig voða skringilega, labbar svo að öðrum sem vinnur á staðnum slær í bakið á honum og segir “He´s from Afghanistan” og svo réttir hann mér kebabinn:-)... Æ kannski er þetta svona had to be there moment, en hélt alla vegana að ég myndi kafna úr hlátri, þar sem mér fannst þetta svo absurd svar :-P Til að sýna ykkur að það var snjór í Þrándheimi þá er hérna mynd af Svanhild, mér og Heidi.
Heidi og kærastinn hennar voru í heimsókn og gistu líka hjá Svanhild (þau eru frá eyjunni, en búa núna í Harstad) þau voru alveg rosa rosa fínt og skemmtilegt fólk!!! Annars er það bara London baby í fyrramálið!!! :-D Kem svo aftur heim á þriðjudaginn í tæka tíð fyrir jógatímann minn. Svo er það bara lærdómur eftir það!!! Að lokum vil ég biðja ykkur öll um að kíkja á þetta hérna: http://aslaugosk.bloggar.is/blogg/111405/ Þetta eru styrktartónleikar fyrir hana Þuríði Örnu litlu frænku hennar Oddnýjar vinkonu minnar sem verða í Bústaðarkirkju þann 8. nóvember. Núna hefur komið í ljós að æxlið í höfði hennar er illkynja og líklegast standa engin meðferðarúrræði til boða. Mér finnst þetta svo ósanngjarnt og vil ég biðja ykkur öll um að biðja fyrir henni og fjölskyldu hennar og vona að kraftaverkið gerist!!
04. nóvember 2006 klukkan 00:30
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 3 athugasemdir
Í gærkvöldi fór ég á Bollywood mynd!! Bollywood myndir eru algjör snilld að mínu mati og skemmti ég mér konunglega (kannski smá flash-back frá því ég var hjá indversku fjölskyldunni í Ástralíu og Sarah og Flora voru alltaf að horfa á Bollywood myndir, þá voru myndirnar alltaf á Hindi með tamílskum texta en í þetta skipti var enskur texti þannig að ég gat skilið!!) Annars er Bollywood farið að líkjast Hollywood myndum meira. Svaka action mynd og aðalleikarinn hann Shah Rukh bara eins og ekta hasarhetja. Þau brustu þó í söng og dans fimm sinnum í myndinni og það var nóg til að gera mig ánægða á þessari rúmlega þriggja tíma löngu mynd!! Næst þarf ég bara að fara að sjá myndina Dhoom 2, sem er Bollywood útgáfa á Mission impossilbe ;-) Annars þá hef ég ekki oft séð jafn mikið af indverjum á sama stað (hef aldrei komið til Indlands) og ég held að ég, Rike og Jill höfum verið eina ekki indverja fólkið. Og án þess að það sé hægt að alhæfa um milljarða þjóð þá eru Indverjar samt fáránlega myndarlegir. Það var hún Joyti sem er ensk en af indverskum uppruna sem dró okkur með sér. Ég var nebbla svo sniðug að ég kynntist nokkrum lögfræðistelpum og mér fannst þær svo fínar að ég barasta “tróð” mér inn í vinahópinn þeirra (þær voru sko allar saman í buddy-hóp) Hérna er svo mynd af okkur nokkrum: ég, Anna-Barcelona, Monze-Barcelona, Nora-Sviss, Jill-Ástralíu, Rike- Þýskaland, Nadine-Þýskaland (vantar nokkrar inn á myndina, m.a. hana Joyti)
Anna og Monze eru sko frá Barcelona þær eru ekki frá Spáni!! Það er e-ð voða hitamál hjá þeim. Ég hafði heyrt um það að Katalóníu búar létu svona en hélt að það væru bara ýkjur, en nei svo sannarlega ekki!! Og þær halda ekki með spænska landsliðinu, heldur með Barcelona!!
Annars þá er svona ýmislegt sem ég er búin að taka eftir sem er ólíkt hérna og heima. Hérna í Noregi þá er talað um allt í vikum!! T.d. var haustfríið í viku 40 og jógatíminn minn byrjaði á þriðjudegi í viku 43!! Að mínu mati er mun auðveldara að segja að jógað muni byrja 25. október, en svona er þetta, það gerir það að verkum að núna í fyrsta skiptið á ævinni veit ég alltaf hvaða vika ársins er!!
Norðmenn labba einnig eiginlega allt sem þeir fara. Þeir vilja margir hverjir frekar labba í klukkutíma heldur en að borga 2000 kr í leigubíl (þó það sé um miðja nótt) og ef það eru bara örfáar stoppistöðvar á milli staða þá labba þeir frekar en að taka lest eða strætó. Ég hef reynt að venja þá suma hverja af þessu, að það sé miklu betra að gera eins og heima að vera alltaf á bíl og leggja bílnum alveg upp við staðinn sem maður er að fara á ;-) hehe en þeir hafa nú ekki hlustað mikið á mig með það.
Norðmenn eru einnig margir hverjir afskaplega “hagsýnir” (=nískir) eins og mörg ykkar kannski vissu. Dæmi um það er ein norsk vinkona mín sem býr í íbúð hérna upp á Kringsjå ásamt kærastanum sínum (jájá það er líka fínt fólk á Kringsjå :-P) Það fylgdu ekki húsgögn með íbúðinni þannig að þau hafa verið að kaupa sér. Þau hafa hins vegar ekki farið auðveldu leiðina sem ég myndi segja að væri að kaupa öll húsgögnin, leigja sér sendiferðabíl og koma öllu heim í einu. Nei, það er alltof dýrt að þeirra mati!! Í staðinn þá kaupa þau einn hlut í einu og koma honum heim með strætó og lest. Þau t.d. tóku eitt skipti í að taka eldhúsborðið og eldhússtólana (myndi maður einhvern tímann sjá fólk með eldhúsborð og stóla í strætó heima af því það tímdi ekki að leigja bíl) annað skipti í að taka stofuborð, annað skipti í að taka hægindastól o.s.frv.!! Þannig að 2 mánuðum eftir að þau fluttu inn eru þau ennþá að fara á milli Ikea og íbúðarinnar. Þau tíma heldur ekki að kaupa sér annað kjöt heldur en hakk af því að það er svo dýrt!!!! Og þetta eru bara örfá dæmi um crazy “hagsýnu” norsarana. Íslendingar mættu nú svo sem alveg taka þá sér til fyrirmyndar að einhverju leyti!!!!
En later pípol, verð að klára að pakka því þarf að fara að fara að leggja af stað út á flugvöll, kem svo aftur í bæinn á mánudaginn!! Svanhild var einmitt að segja mér að það væri komið fullt af snjó og væri rosa kalt í Þrándheimi, þ.a. öllum hlýju fötunum verður hent ofan í tösku!!
27. október 2006 klukkan 17:06
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 6 athugasemdir
Já, það er kalt í Osló í dag!! Þar sem ég er ekki með hitamæli eða er góð að meta það hvernig veðrið er í gegnum gluggann þá klæði ég mig alltaf í samræmi við það hvernig veðrið var daginn áður. Já, já ekkert svo sniðugt en hefur virkað ágætlega hingað til, þangað til í dag. Ég var svo sniðug að ég ákvað að labba heim í staðin fyrir að taka lestina. Þetta er e-ð sem ég geri helst aldrei þar sem ég á heima upp á einhverju sem ég myndi kalla fjall (en er örugglega bara hæð) en það er alla vegana asskoti löng alveg ótrúlega brött brekka heim til mín. Haha man þann dag (eða nótt) þegar ég fattaði að ég ætti heima uppi á fjalli, þá löbbuðum við nokkur heim frá því að vera að skemmta okkur af einum af háskólaskemmtistöðunum, ég hélt ég myndi drepast þarna, ætlaði varla að komast þetta á háu hælunum mínum(tekur svona kannski 30 mín að labba frá háskólanum til mín). Alla vegana þá komst ég þetta ekki í dag, hélt ég myndi krókna úr kulda þannig að hoppaði inn í lestina (áður en ég kom að brekkunni). En ég er búin að vera að frjósa úr kulda eftir þennan labbitúr minn (sem var 10 mínútur :-P) og núnar sit ég inni hjá mér í fullt af peysum og gammosíum o.sl. og þeir segja á netinu að það sé 5 stiga hiti úti, hvernig verð ég eiginlega í vetur???
Maturinn með sambýlingum mínum var fínn. Kínverjinn bara hinn fínasti kokkur og ég líka svona asskoti góð að baka köku.
Hérna er svo mynd af okkur við eldhúsborðið okkar, frá vinstri: Kínverjinn, grikkinn, ég, norður-noregur, afríka og suður-noregur. Það vantaði bara Hollendinginn.
Annars er kannski ekki jafn slæmt að búa hérna eins og hefur kannski hljómað í síðustu færslu. Þar sem ég bý nú uppi á fjalli ;-) og erum á endastöð lestarlínunnar þá er falleg náttúru í kringum svæðið. Skógur og vatn og fullt af skemmtilegum gönguleiðum o.sl. Svo er líka búð, sjoppa, pósthús, kaffihús o.sl. á stúdentagörðunum, já og 6 leikskólar takk fyrir!! Enda nóg af barnaöskrum á daginn!!!! Það sem er kannski leiðinlegast er það að eiginlega allir sem ég hef kynnst búa niðri á Sogn (en það er annar stúdentagarður sem er við rætur fjallsins ;-) Það er alveg ótrúlegt að ef ég kynnist skemmtilegu fólki þá býr það niðri á Sogn en ef það er hundleiðinlegt og skrítið þá á það náttúrulega heima á Kringsjå. Það gerir það að verkum að ég er oft niðri á Sogn og finnst það svo sem í lagi, en svo þegar maður býður Sogn fólkinu að koma upp til Kringsjå þá nennir það því ekki!! Það hljómar kannski eins og Sogn sé e-ð langt í burtu, en það eru tvær strætóstoppistöpvar takk fyrir (hehe og ég tek alltaf strætóinn heim).
Mér tókst þó að finna mér fínt Kringsjå fólk sem eru m.a. leigubílabuddyarnir mínir um helgar ;-) Það er nebbla svo helvíti dýrt að taka leigubíl hérna að maður verður að hafa marga með sér svo maður fari nú ekki á hausinn. Hérna er svo Kringsjå fólkið mitt :-) Jim – Ástralíu, Neil- Englandi, Jill – Ástralíu, ég og svo norsari sem bjó á sama gangi og Jim og Jill (þau eru par frá Ástralíu)
Og ég er ekkert svo lítil eins og virka þarna, það eru bara allir hérna svo asskoti hávaxnir!!! (Jim er í fatla af því hann mölbraut á sér herðablaðið á rugby æfingu, það stoppaði hann þó ekkert í því að fara á djammið, við hin þurftum bara að passa upp á það að það myndi enginn rekast utan í hann og eins og þið getið ímyndað ykkur þá er það mjög erfitt inni á skemmtistöðum!!!)
Svo er margt á dagskrá á næstunni. Ég er að fara að heimsækja hana Svanhild vinkonu mína sem ég kynntist í Ástralíu uppi í Þrándheimi núna um helgina. Helgina á eftir erum ég og Silje að fara saman til London. Svo þarf ég að labba frá Frognersteren til Sognsvann, labba í kringum Sognsvann, sjá Holmekollen, fara á náttúrusafnið að sjá sýninguna um samkynhneigðu dýrin, fara í heimsókn í heimabæ Silje, læra og hitta fólk og skemmta mér. Þannig að nóg að gerast :-D
26. október 2006 klukkan 01:46
Ásgerður Ósk Pétursdóttir 4 athugasemdir